Til baka í verslun

Skilmálar og skilaréttur

Upplýsingar um kaup, afhendingu, rafrænar vörur og skilarétt í vefversluninni.

Seljandi

Seljandi er Ari Baldursson, kennitala 2607592729.

Heimilisfang: Engimýri 6, 600 Akureyri, Ísland.

Netfang: [email protected]. Sími: +354 8994119.

Vörur og verð

Í vefversluninni eru seldar tónlistartengdar vörur, til dæmis geisladiskar, stafrænar plötur og stök lög til niðurhals. Öll verð eru birt í íslenskum krónum.

Verð og framboð geta breyst án fyrirvara. Pöntun telst móttekin þegar kaupandi hefur gengið frá pöntun og greiðsluferli hefur verið hafið eða lokið.

Greiðslur

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt myPOS. Kortaupplýsingar eru ekki vistaðar í kerfum seljanda.

Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Afhending

Ef pöntun inniheldur vöru sem þarf að senda, er hún send samkvæmt þeirri sendingarleið sem kaupandi velur í checkout. Afhendingartími getur verið breytilegur eftir sendingarleið og álagi.

Efnislegar vörur eru að svo stöddu aðeins sendar innan Íslands.

Ef pöntun inniheldur aðeins rafrænar vörur er enginn sendingarkostnaður.

Rafrænar vörur og download

Rafrænar vörur eru afhentar með download-linki eftir að greiðsla hefur verið staðfest. Með kaupum á rafrænni vöru samþykkir kaupandi að rafræn afhending hefjist strax eftir greiðslu.

Skilaréttur á rafrænum vörum fellur niður þegar download-linkur hefur verið afhentur eða niðurhal hefur hafist, nema vara sé gölluð eða afhending mistekst.

Skilaréttur og endurgreiðslur

Kaupandi getur skilað óopnuðum og óskemmdum efnislegum vörum, til dæmis CD, innan 14 daga frá móttöku. Kaupandi greiðir sendingarkostnað vegna skila nema vara sé gölluð eða röng vara hafi verið send.

Ef vara er gölluð eða rangt hefur verið afgreitt skal hafa samband eins fljótt og hægt er. Endurgreiðsla fer að jafnaði fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup.

Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að skilaréttarbeiðni hefur verið samþykkt og vara hefur borist til seljanda, eða staðfest hefur verið að endurgreiðsla eigi við.

Afpöntun

Ef greiðsla er ekki staðfest eða kaupandi hættir við greiðslu er pöntun ekki afgreidd. Hægt er að hafa samband ef leiðrétta þarf pöntun eða ef vandamál koma upp í greiðsluferli.

Persónuupplýsingar

Upplýsingar sem kaupandi gefur upp eru notaðar til að afgreiða pöntun, senda vörur, senda kvittanir og veita þjónustu tengda kaupunum. Upplýsingar eru ekki seldar eða afhentar óviðkomandi aðilum nema það sé nauðsynlegt vegna greiðslu, afhendingar eða lagaskyldu.

Samband

Ef spurningar vakna um pöntun, afhendingu, skilarétt eða rafrænt niðurhal má hafa samband við seljanda.

Netfang: [email protected]