Sveitaball 77

Tóntegund: C
Tempo: 170 BPM • 4/4

✍️ Höfundar

Ari Baldursson — Lag + texti
Þetta lag er afturhvarf til síðari hluta áttunda áratugarins, þegar við félagarnir keyrðum langar leiðir til að komast á ball. Stefnan var sett á félagsheimilin í sveitunum þar sem allir mættu til að dansa, drekka og skemmta sér í bjartri sumarnóttinni. Við fylgdum vinsælustu hljómsveitunum eftir eins og skuggar og kunnum hvert einasta lag. Þetta voru ógleymanlegir tímar.

Textinn fangar einmitt þessa rafmögnuðu eftirvæntingu. Landróverinn bíður tilbúinn fyrir utan og það hitnar í æðunum þegar haldið er af stað. Þegar komið er á staðinn blandast allt saman í eina óræða kös; fólk úr öllum áttum, óharðnaðir unglingar, gamlir karlar, stelpuskott og strákar af næstu bæjum – og auðvitað sveitalöggur þrjár til að halda uppi lögum og reglu.

Boðskapurinn er einfaldur: Lífið er núna, en ekki eftir ár. Á alvöru skralli skiptir ekkert máli nema gleðin, svitinn og söngurinn á meðan dansinn dunar fram undir morgun.

🎹 Útsetning

Ari Baldursson — Producer, Útsetning

🎤 Flytjendur

Ari Baldursson — Söngur
Beau Hendrich — Bassi, Rafgítar, Kassagítar
Corey Marshall — Trommur
Julian Young — Hammondorgel
Travis Mobley — Hljómborð

🎚️ Production

Ari Baldursson — Upptökur
Beau Hendrich — Upptökur
Corey Marshall — Upptökur
Jeff Stauffer — Hljóðblöndun (mix), Mastering
Julian Young — Upptökur
0
🖨 Prenta Loka