Tónleikar 4. júní
Græni hatturinn
4. júní 2026
Frumsamin tónlist með kántríívafi.
Ari Baldursson hefur verið iðinn við að gefa út efni síðustu ár – og nú er kominn tími til að spila þau live.

Ari hefur verið í tónlist frá unglingsárum. Hann var í ballbransanum á Akureyri og víðar á níunda áratugnum – m.a. með París og Helenu fögru. Á tíunda áratugnum lá leiðin til Danmerkur þar sem hann var í hljómsveit sem lék eingöngu kántrý tónlist. Um og upp úr aldamótum var hann hluti af dúettinum Jóni forseta, sem starfaði út frá Hafnarfirði. Í dag er hann aftur búsettur á Akureyri – hringnum lokað.

Góð lög. Þétt band. Ekkert vesen.
Hljómsveitin
Ari Baldursson
Söngur, Gítar
Bjarni Arason
Trommur
Gísli Örn Guðmundsson
Bassi
Hallgrímur Jónas Ómarsson
Gítar
Ingólfur Jóhannsson
Hljómborð
Árni F Sigurðsson
Hljóðmaður
Lagalisti
1. Á hverjum degi
2. Hring eftir hring
3. Fullikall
4. Tóti
5. Ég heiti Ingi
6. Litla lagið
7. Skiptir það máli
8. Okkar óskaland
9. Sveitaball 77
HLÉ
10. Heiðarbýlið
11. Þannig gegnur lífið sinn vana gang
12. Segðu mér
13. Gull og grænir skógar
14. Öllum er mér lokið
15. Ekki seinna vænna
16. Ég er að koma heim
AUKALÖG
17. Draumaheimur
18. Alltaf einn
Á hverjum degi
„Á hverjum degi“ er tær og einlægur ástarsöngur sem fagnar lífinu og þeirri gæfu sem fylgir því að finna rétta förunautinn. Boðskapurinn er einfaldur en kraftmikill: Þegar ástin bankar upp á breytist allt leiðarstefið. Gatan framundan verður bein og greið og hvert skref sem tekið er verður að gæfuskrefi.

Lagið fjallar um þá öryggistilfinningu sem fylgir því að eiga einhvern sem vakir yfir manni, sumar, vetur, vor og haust. Það fangar þetta augnablik þegar maður loksins skilur hvað það er undurgott að vera til. Hér er engin kaldhæðni á ferð, heldur aðeins hrein og æfilöng sælustund sem dregur fram birtuna í hverjum degi.
Hring eftir hring
Lagið fjallar um það hvernig við ferðumst með jörðinni á óendanlegum hringvegi kringum sólina. Hér er mikið um andstæður, hálfgerð „yin og yang“ pæling um lífið og tilveruna. Á meðan það er dagur hjá þér er nótt hjá mér; þegar sumarsólin skín hér er vetur annars staðar. Þannig fer tíminn í sporanna rás og gæfan er oft það sem við sjálf sköpum okkur.

Boðskapurinn snýst um hringrásina þar sem allt er tengt; það sem endar hjá einum verður eftir hjá öðrum. Hér er vísun í að „dauði eins sé annars brauð“ – það sem einn upplifir sem missi getur einmitt verið hagur annars. Þetta er hluti af þessu stóra samhengi sem við eigum ekki að hafa of miklar áhyggjur af.

Það er best að njóta ferðalagsins, svífa leikandi yfir dýrðina og horfa á geiminn með eftirvæntingu. Við eigum bara að hringsnúast hamingjusöm, njóta fegurðarinnar og syngja okkar söngva á leiðinni.
Fullikall
Lagið Fullikall varð til í kringum 1985. Á þeim árum var ég hljómborðsleikari og söngvari í hljómsveitinni París. Við spiluðum út um allt og bandið var drulluþétt, enda Halli Gulli á trommum og Finnur Finns á bassa. Ingvar Grétarsson kíldi þetta svo saman með ótrúlegum tilþrifum á gítarnum og Júlíus Guðmundsson stóð í frontinum og söng eins og enginn væri morgundagurinn.

Þetta voru geggjaðir tímar – ungir menn, ódauðlegir, sem tóku hressilega á því. Lagið og textinn urðu einmitt til í þessu umhverfi. Það er oft mikil skemmtun að fylgjast með gestum á fjölmennum dansleikjum og sjá hvernig fólki reiðir af þegar líður á nóttina. Stundum voru hljómsveitarmeðlimir reyndar sjálfir orðnir hálfframlágir eftir törnina og þá þurfti mikið hugmyndaflug til að hressa félagana við.

Við náðum eitthvað að spila þetta á sínum tíma áður en leiðir skildust, en nú hefur lagið verið endurvakið 40 árum síðar og hljómar svona í dag.
Tóti
Lagið „Tóti“ fjallar um skemmtikraftinn og mannvininn Þórólf. Hann var það sem kallað er „Spillemand“. Þessir karlar hafa alltaf verið til í ýmsum myndum; hér áður fyrr fóru þeir á milli bæja með hljóðfæri og léku fyrir dansi. Hljóðfærin voru af öllum gerðum, en ef engin voru tækin var bara sungið – eða spilað á greiðu og bréf.

Fiðlan var meðfærilegust þegar menn fóru fótgangandi á milli staða, en á Íslandi var harmónikkan algengust. Ég hef meira að segja heyrt sögur af „Tótum“ sem höfðu með sér heilu harmóníumin og fluttu þau á milli staða, þannig að menn lögðu ómælt á sig til að koma tónlistinni til fólksins. Margar sögur eru til af Tótum sem þótti sopinn góður og var gestum af þeim toga gjarnan veitt ríkulega, enda jók það oft á bæði spilagleðina og úthaldið.

Nútíma-Tótar grípa helst í gítarinn þegar halda á uppi stuði, þótt enn megi rekast á einstaka harmónikkuleikara sem heldur uppi stemningunni. Ég þekki ekki skapgerð þessa fólks almennt, en mig grunar að þetta séu mestu ljúfmenni sem hafa það eitt að markmiði að skemmta sér og öðrum og gleyma sér í tónlistinni. Okkar Tóti er allavega mikið ljúfmenni og dáður af öllum, og ekki er að heyra að hann hafi notað aðra vímugjafa en gleðina og góða skapið.
Ég heiti Ingi
Þessi texti getur seint talist djúp speki eða háfleygur skáldskapur. Hér ræður einfaldleikinn ríkjum, en undir niðri leynist þó lítil og einlæg saga um sterkar tilfinningar til ákveðinnar persónu. Sögumaðurinn gerir sér enga grein fyrir því að fegra hlutina; hann hefur heyrt sögur um að viðkomandi sé hálfgalin og jafnvel óuppalin, en það breytir engu um hrifninguna.

Það gætir mikillar óþreyju í laginu þar sem sögumaðurinn þráir ekkert heitara en að fá athygli og hringir í sífellu í þeirri von að fá símtal til baka um hæl. Hann einfaldlega verður að ná athygli hennar og fá hana með sér í bæinn. Kæruleysið og ákefðin keyra söguna áfram þegar hann ekur af stað, alveg óvænt, til að sækja hana í einum grænum – knúinn áfram af þeirri einu staðreynd að hann dáist að útliti hennar og stæl.
Litla lagið
Hér er á ferðinni lag sem á sér langa sögu, því það var samið af 16 ára ungling. „Litla lagið“ er í senn einfalt og einlægt og fjallar um ástina og leyndardómana sem henni fylgja. Það er dæmi um það hvernig hreinustu tilfinningarnar þurfa ekki flókna útsetningu eða stór orð til að komast til skila.

Textinn er hógvær og heiðarlegur; höfundurinn biðst nánast afsökunar á því hversu lítið lagið er, en undirstrikar um leið að það sé þeirra einkamál og leyndarmál sem það er samið fyrir. Þetta er falleg áminning um þann tíma þegar maður sat með blað og blýant og reyndi að koma hjartanu í lag, létt og lipurt, án þess að pæla í neinu öðru en augnablikinu.
Skiptir það máli
Hér er velt upp spurningunni hvort það skipti í raun máli fyrir lífsgæðin hvernig maður hagar sér og hvaða vini maður velur sér. Kannski væri einfaldlega betra að slappa aðeins af? Boðskapurinn er sá að það sé hreinlega óhollt að strita of mikið, en eitt stendur þó upp úr: Enginn tekur ábyrgð á þinni heilsu eða hamingju nema þú sjálfur. Þú getur lesið allar sjálfshjálparbækurnar í heiminum, en á endanum er enginn sem sér um framkvæmdina nema þú.

Þetta er engin ný speki, enda má finna uppskriftina að góðu lífi í gömlum skrifum ef maður nennir að glugga í þau. Lagið er hins vegar litað lúmskri kaldhæðni. Á meðan viðlagið ómar um hjörtu sem slá saman, kemur í ljós í lokin að lófatakið sem heyrist er í raun kveðja til einstaklings sem er gjörsamlega útbrunninn. Vinirnir fagna hetjunni sem stóð sig svo vel í stritinu, en raunin er sú að hún valdi líklega auðveldu leiðina: að slá nauðsynlegum lífsstílsbreytingum á frest þar til það var orðið um seinan. Eftir liggur úrsérgengið flak.
Okkar óskaland
Líkt og með marga aðra texta höfundarins, þá er ferlið á bak við þetta lag hálfgerð óvissuferð; skrifað er beint út frá því sem upp í hugann kemur hverju sinni og undirmeðvitundinni leyft að ráða för. Útkoman er magnaður og dálítið dulúðugur óður til náttúrunnar og landsins okkar. Textinn dregur upp ákveðna andstæðu á milli manna og náttúru. Annars vegar er það maðurinn – hetjulegur á yfirborðinu, á þönum út um víðan völl, „rífur bara kjaft“ og er nánast alveg sama um afleiðingarnar svo lengi sem þær lenda ekki á honum sjálfum.

Hins vegar er það náttúran, sem þarf að þola þessa misjafnlegu meðferð en sér samt alltaf um sig sjálf. Hún birtist okkur í ýmsum myndum og mikilli dulúð, eins og þegar þoka og dögg leggjast yfir dalina og eyðisandinn. Í gegnum þessa myndrænu lýsingu má finna hvernig landið sjálft sefur og hvílist, fullt af þögnum álögum sem enginn kemst undan – og þrátt fyrir allt okkar strit og yfirgang, þá er það einmitt þessi tenging við landið sem gerir það að verkum að lífið yrði „alveg hábölvað“ án þess.
Sveitaball 77
Þetta lag er afturhvarf til síðari hluta áttunda áratugarins, þegar við félagarnir keyrðum langar leiðir til að komast á ball. Stefnan var sett á félagsheimilin í sveitunum þar sem allir mættu til að dansa, drekka og skemmta sér í bjartri sumarnóttinni. Við fylgdum vinsælustu hljómsveitunum eftir eins og skuggar og kunnum hvert einasta lag. Þetta voru ógleymanlegir tímar.

Textinn fangar einmitt þessa rafmögnuðu eftirvæntingu. Landróverinn bíður tilbúinn fyrir utan og það hitnar í æðunum þegar haldið er af stað. Þegar komið er á staðinn blandast allt saman í eina óræða kös; fólk úr öllum áttum, óharðnaðir unglingar, gamlir karlar, stelpuskott og strákar af næstu bæjum – og auðvitað sveitalöggur þrjár til að halda uppi lögum og reglu.

Boðskapurinn er einfaldur: Lífið er núna, en ekki eftir ár. Á alvöru skralli skiptir ekkert máli nema gleðin, svitinn og söngurinn á meðan dansinn dunar fram undir morgun.
Heiðarbýlið
Þegar ferðast er um hálendi Íslands, um afdali og heiðarlönd, má víða sjá merki um mannabústaði. Fólk kom sér upp aðsetri á ótrúlegustu stöðum og bjó þar við misjöfn kjör. Þessum bæjum – eða kotum – var gjarnan úthlutað til þeirra sem ekki vildu vera í vist hjá öðrum, enda var frelsið fólki efst í huga. Bæir og gripahús voru byggð úr því sem landið gaf; húsin entust illa og þurftu sífellt viðhald og endurbyggingu. Margar frásagnir hafa verið ritaðar um lífið á heiðunum, bæði ljúfar og síður góðar.

Maður kemst ekki hjá því að velta fyrir sér hvernig líf fólks og skeppna var á þessum býlum þar sem náttúruöflin voru, og eru enn, óvægin. Það er samt stutt í rómantíkina og vissulega er landið fallegt í góðu veðri, hvort sem er að sumri eða vetri.

Lagið Heiðarbýlið er lítil saga um eitt af þessum býlum. Tíminn eyðir smám saman ummerkjum og minningum, en sögurnar lifa – og í manninum býr alltaf taug sem togar hann sífellt aftur í átthagana.
Þannig gegnur lífið sinn vana gang
Þannig gengur lífið sinn vana gang. Lagið er lífshlaupið sjálft í þremur vísum; við fæðumst, lifum og deyjum. Það þarf að fóta sig í fyrstu, en ferðin verður markvissari og öruggari með tímanum. Þegar endalokin nálgast er orðið of seint að iðrast.

Lagið fjallar ekki síður um það hvernig við mótumst af upprunanum og hversu sterkt við trúum því að líf okkar sé viðbót við það sem á undan er gengið. Boðskapurinn er sá að öllu lífi á jörðinni farnast best að lifa í sátt og stefna í rétta átt, hver svo sem hún er.

Hugmyndin að textanum kviknaði þegar ég ók um húnvetnska sveit að vori til og sá nýfædd lömbin stíga sín fyrstu skref í túnunum hjá mæðrum sínum. Það skiptir ekki máli hver skepnan er – allt lýtur lögmálum lífsins.
Segðu mér
Lagið var samið í miðjum Covid-19 faraldrinum þegar mikið mæddi á fólki og mikilvægt var að stappa stálinu í hvert annað. Kveikjan að laginu voru vangaveltur um það hvar við værum í raun stödd ef við glötuðum trúnni og voninni á allt og alla í miðri einangrun og óvissu. Spurningin „hvað verður þá ef gleðin og bjartsýnin eru horfnar út á haf?“ vísar beint í þennan sálræna ótta sem einkenndi samfélagið á þessum tímum.

Við þennan þunga blandast svo ljúf speki um að líta sér nær og átta sig á því að það er aldrei of seint að rækta samböndin og horfa á það góða í tilverunni – eins og hamingjuna sem leynist í litlu hlutunum, könguló á mosabarði eða sumarsólinni. Boðskapurinn er skýr: Þegar á botninn er hvolft er engum hollt að loka sig af, klemma saman kjálkana og ala á gervistolti. Í stað þess að æðrast eigum við að brosa út um gluggana, reka burt skuggana og boða nýja endurfundi.
Gull og grænir skógar
Hér gerir höfundur mikilvæga uppgötvun og horfist í augu við sjálfan sig. Hann lýsir því yfir að honum þyki hreinlega slæmt að hafa ekki áttað sig á því fyrr að hann er, alveg eins og allir aðrir, fyllilega þess verðugur að njóta gleði og hamingju í lífinu. Kveikjan að laginu er sú ákvörðun að kasta loksins af sér gömlum boðum og byrðum til þess að ganga beint inn um gleðinnar dyr, enda er það alltaf vonarinnar virði að láta vaða og treysta því að hamingjan geti fylgt manni.

Þótt lífsins lystisemdum sé tekið fagnandi og sögumaðurinn telji sig nú hafa örugga stjórn á þeim, þá kraumar ákveðin varkárni undir niðri. Hann er brenndur af fyrri reynslu og afleiðingum ótæpilegra skemmtana og veit að hann má ekki steypa sér í glötun. Þess vegna ætlar hann að dreypa varlega á dagsins víni, en þó duglega ef hann kýs svo sjálfur. Þetta er hress en þroskaður slagari sem fagnar lífinu hér og nú, með opin augu fyrir því hve mikið er í húfi.
Öllum er mér lokið
Textinn er skrifaður í júní 2023 og er ástandið í samfélaginu á þeim tíma kveikjan að laginu. Þá eins og nú var stál í stál á mörgum vígstöðvum; fréttirnar voru undirlagðar af samningaþrasi, verðbólgu og fólki sem fór hreinlega af límingunum yfir loftslagsmálum og orkuskiptum. Umræðan um kosningar vegna Evrópusambandsmála var ekki einu sinni komin á dagskrá þá, en þverhausar og þursabelgir þrasa engu að síður í einum kór þar til heilinn á manni verður hálfsljór og engan frið er að fá.

Lagið er hressilegur country-boogie slagari en undir niðri kraumar beitt kaldhæðni. Boðskapurinn snýst nefnilega um þessa „bragabót“ sem okkur er stöðugt seld; þessa tálvon um að búið sé að finna lausnina og allt sé á réttri leið. Okkur er hamrað á því að allt sé í lagi og það sé verið að redda málunum – og við það á lundin að léttast.

Raunveruleikinn er hins vegar sá að sagan hefur sýnt okkur síðustu áratugi að ástandið lagast lítið sem ekkert. Við hringsnúumst í sama farinu á meðan „meðalið“ sem ráðherrarnir boða reynist oft vera lítið annað en innantóm loforð sem halda okkur gangandi á tálvoninni einni saman.
Ekki seinna vænna
Lagið byrjar á ákveðnum trega og dökku yfirbragði. Horft er til baka yfir erfiða hugarfundi, dimmar svikanætur og tregafullar bænarstundir sem hafa verið manni fjötur um fót. En þrátt fyrir þessa fortíðardrauma er undirtónninn fullur af hlýju og nýrri von; því sérhver saga og sérhvert augnablik sem fólk deilir getur yljað manni þegar upp er staðið, enda segir máltækið að allt sé þegar þrisvar er.

Boðskapurinn nær hámarki í viðlaginu þar sem tekin er meðvituð ákvörðun um að það sé hreinlega ekki seinna vænna en einmitt núna að breyta um stefnu. Þetta er fílósófía þess að þora að sleppa stjórninni: að leysa festarnar, róa taugarnar og láta reka á reiðanum. Í stað þess að strita og berjast gegnum fleiri „hetjudáðir“ er gengið inn í nýjan og fullkominn sáttmála við lífið – sjálfan sælusáttmálann, þar sem maður fagnar frelsinu í sátt við sjálfan sig og aðra.
Ég er að koma heim
Þetta lag er hreinræktuð ferðasaga sem byggir á eigin reynslu af því að bruna af stað úr höfuðborginni á vit heimahaganna í Eyjafirði. Sagan fangar fullkomlega þetta dæmigerða kæruleysi og glannaskap unga mannsins sem á varla fyrir eldsneyti, hvað þá viðhaldi á bílskrjóðnum, en lætur það ekki á sig fá. Þótt farartækið sé dýrmætt þá þolir það ferðalagið afleitlega og tæpast sér fyrir endann á því hvernig fari – enda liggur við stórslysi á leiðinni þegar bensíntitturinn er næstum keyrður um koll í Borgarnesi!

Innan um brak og bresti, þar sem bensínlok og skrúfur úr húddinu fúka út í veður og vind, ríkir samt algjört áhyggjuleysi hjá bílstjóranum. Hugurinn ber hann hálfa leið og átthagarnir toga svo fast að ekkert annað skiptir máli. Það má hreinlega lappa upp á reiðskjótann þegar norður er komið. Textinn er einstaklega myndrænn og fylgist hlustandinn með þjóðveginum líða hjá, stað fyrir stað, þar sem brunað er fram hjá kunnuglegum kennileitum á borð við Blönduós og Varmahlíð á leiðinni heim í fjör og geim.
Draumaheimur
Lagið fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um draumaheim eða útópíu. Þegar nóttin skellur á og skuggarnir lengjast má greinilega lesa úr textanum ákveðna krísu gagnvart raunveruleikanum og sterka þörf höfundarins til að flýja hann. Það var þó ekki fyrr en löngu síðar að höfundurinn áttaði sig á því hvað var í gangi á þessum tíma; lagið sprettur upp úr meðvituðum raunveruleikaflótta og ákveðinni afneitun á eigin niðurrifi.

Textinn fangar þessa djúpu tilvistarlegu þrá eftir því að sleppa undan óttanum og þrautunum – að flýja burt frá öllu því sem spillir heiminum, jafnt innra sem ytra, og leita athvarfs á vit staðar þar sem ríkir algjört öryggi. Boðskapurinn snýst um þessa sárgrætilegu þörf fyrir að finna ást, yl og frið í nýju upphafi þegar veruleikinn er orðinn of þungur og byrja lífið hreinlega á ný, frjáls og frír.
Alltaf einn
Hugmyndin að þessu lagi kviknaði í byrjun febrúar 2026 í heita pottinum í sundi. Við vorum tveir kollegar að bera saman bækur okkar og ræða kosti og galla þess að vera í fjölmennri hljómsveit á móti því að standa vaktina einn. Þar sem ég hef giggað meira og minna sem „one-man-band“ síðustu tvo áratugina, var þetta efni sem lá mér nærri. Í pottinum kom fram að það yrðu að vera margir moll-hljómar í svona lagi til að undirstrika alvöru einmanaleika einyrkjans, og viðlagið sjálft varð svo til á röltinu heim efter sundið.

„Alltaf einn“ er hálfgerð fílósófía hins eina sanna einyrkja í tónlistinni. Hér eru flestar helstu klisjurnar notaðar, bæði í lagi og ljóði, til að fanga þessa sérstöku upplifun. Þetta er sagan af því að mæta í hús sem bíður þess að lifna við, standa á pallinum og gulta létt á gítarinn á meðan beðið er eftir að samkoman komist á skrið.

Lagið er kveðja til allra þeirra sem standa keikir á sviðinu án „stjörnuliðs“ eða remix-véla. Tilvísunin í Bragakaffið undirstrikar andstæðuna við tæknivædda poppheiminn; þótt maður sé alltaf einn á gigginu og hafi stundum fengið nóg af rigginu, þá stendur maður samt beinn á sviðinu.